Kjaraviðræður á vinnumarkaði eru í hnút, að mati Þorsteins Víglundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Í leiðara fréttablaðsins Af vettvangi segir hann að þetta eigi við um viðræður opinberra starfsmanna við ríkið auk viðræðna Samtaka atvinnulífsins við stéttarfélög á almennum markaði. Kröfur flestra stéttarfélaganna séu langt umfram það sem fyrirtækin geti staðið undir án þess að það komi fram í verðhækkunum, uppsögnum, gjaldþrotum eða með því að draga úr vöruþróun og markaðssókn.

„Lítið samráð er milli stéttarfélaganna og markmið þeirra allra er að enginn fái meira en þeirra eigin félagsmenn og jafnframt að þeir fái meira en aðrir. Yfirlýst markmið með verkfallsboðunum er einnig að ná til baka kjarabótum af læknum og kennurum sem sömdu m.a. um breytt vinnufyrirkomulag og hagræðingu á síðasta ári.

Enginn af ótalmörgum forystumönnum stéttarfélaganna virðist hafa áhyggjur af því að verðlag og vextir hækki, skuldabyrði fólks vaxi, að gengi krónunnar muni veikjast og að nýr verðbólguspírall fari af stað.

Þótt digrum verkfallssjóðum sé veifað til að sýna mátt einstakra stéttarfélaga er víst að sjóðirnir duga skammt til að vega á móti hærra vöruverði og aukinni skuldabyrði heimilanna í landinu,“ segir í leiðaranum.

Hann segir að Samtök atvinnulífsins muni áfram sýna ábyrgð og halda fast við að nýir kjarasamningar samræmist stöðugleika í efnahagslífinu. „Reynslan sýnir að miklar launahækkanir skila sjaldnast auknum kaupmætti að ráði. Meira verður gjarnan minna í því samhengi vegna neikvæðra áhrifa slíkra samninga á verðbólgu, vexti og gengi. Kjarasamningar síðasta árs hafa sýnt hvernig lífskjör alls almennings hafa batnað og kaupmáttur aukist með lágri hlutfallshækkun launa, minnkandi verðbólgu og lækkandi vöxtum.“