Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur skipað Kjartan Bjarna Björgvinsson, aðstoðarmann dómara við EFTA-dómstólinn, í embætti dómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 4. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins .

Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 16. janúar sl. og bárust alls níu umsóknir um embættið. Innanríkisráðherra fór þess á leit við dómnefnd, sem starfar skv. 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998, að hún léti í té umsögn sína um hæfni umsækjenda um embættið og afhenti nefndin ráðherra umsögn sína þann 20. apríl 2015.

Niðurstaða nefndarinnar varð sú að Kjartan Bjarni og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir umsækjenda til að hljóta skipun í embættið.

Umsögn dómnefndarinnar.