Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir gefa bæði kost á sér í annað sæti á lista sjálfstæðismanna í prófkjöri fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Prófkjörið fer fram þann 16. nóvember næstkomandi.

Kjartan hefur verið borgarfulltrúi síðan 1998. Áslaug hefur verið borgarfulltrúi síðan í haust. Aðrir hafa ekki gefið kost á sér í annað sæti listans. Þrír gefa kost á sér í fyrsta sætið. Það eru þau Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og Halldór Halldórsson.