Kjartan Hansson hefur verið ráðinn forstöðumaður Rafrænna þjónustulausna á hugbúnaðarsviði Origo.

Kjartan hefur undanfarin ár starfað sem forstöðumaður vöruþróunar hjá Alva. Þar áður starfaði hann sem vörustjóri og deildarstjóri hjá Meniga og deildarstjóri netviðskipta hjá Íslandsbanka. Kjartan er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Origo er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá félaginu starfa um 450 manns.