Kjartan Broddi Bragason hefur sagt sig úr stjórn Tryggingarmiðstöðvarinnar (TM) frá og með deginum í dag, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
?Úrsögnin kemur í kjölfar þess að Fjárfestingarfélag sparisjóðanna seldi hlut sinn í TM þann 23. nóvember síðastliðinn," segir í tilkynningunni.
Sæti Kjartans í stjórn tekur Jón Kristjánsson.