Kjóllinn sem Judy Garland var í í kvikmyndaklassíkinni The Wizard of Oz seldist fyrir 480.000 bandaríkjadali á uppboði á dögunum. Í sama uppboði var kappakstursjakki Steve McQueen seldur á 50.000 dali og armbandsúrið, sem John Belushi var með í The Blues Brothers, seldist á 15.000 dali. Sólgleraugu Belushi úr sömu mynd seldust svo fyrir 16.640 dali.

Fleiri flíkur voru seldar fyrir háar fjárhæðir í uppboðinu. Fjólublátt pils Marilyn Monroe úr kvikmyndinni River of No Return seldist fyrir 50.000 dali, Kjóll Julie Andrews úr The Sound of Music seldist fyrir 38.400 dali og samfestingur Jayne Mansfield seldist fyrir 16.250 dali.