Ákveðið hefur verið að bíða með útgáfu skuldabréfs Arion banka í evvrum. Ástæðan er sú að kjörin sem bankanum buðust voru ekki eins hagstæð og vonast hafði verið til.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að ekki hafi verið hætt við skuldabréfaútgáfuna heldur verði beðið eftir því hvernig aðstæður þróist á erlendum mörkuðum.