Launakjör stjórnarmanna VÍS eru svipuð því sem gerist í sambærilegum félögum á markaði, að þvi er segir í yfirlýsingu stjórnar VÍS, sem send var á fjölmiðla.

segir í yfirlýsingunni að í ársreikningi félagsins fyrir árið 2014 sé samanburður sem leiði í ljós að ekki er um þá veigamiklu breytingu að ræða á heildar starfskjörum stjórnarmanna frá árinu 2014 sem komið hafi fram í fjölmiðlum.

Stjórn VÍS taki laun samkvæmt samþykkt aðalfundar VÍS þar sem tekið hafi verið mið af umfangi og eðli rekstrar og sé í samræmi við önnur sambærileg félög í Kauphöll Íslands.