Kjörsókn í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi er þó nokkuð minni nú en árið 2006. Alls kaus 7.871 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem fram fór í dag og í gær. Á kjörskrá  voru hins vegar um 19.500 manns.

Í prófkjöri sjálfstæðismanna  í Reykjavík árið 2006 kusu 10.486.

Alls kusu 5.609 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kraganum í dag en um 13 þúsund voru á kjörskrá.

Í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kraganum árið  2006 kusu 6.409.

Sjálfstæðisflokkurinn birtir allar tölur í talningu prófkjöranna á vef sínum sem finna má hér.