Framleiðsla á kjöti var 9,3% minni en á sama tíma og í fyrra en mest munar um 22,5% samdrátt í alifuglakjöti og tilsvarandi 25% samdrátt í sölu þess.

Þá hefur framleiðsla og sala svínakjöts aukist um 10,5% sl. ár þar af 13,5% síðustu 3 mánuði.

Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins.

Þar kemur fram að sala á kjöti var 24% minni en á sama tíma í fyrra og um 11% síðustu þrjá mánuði. Mestur samdráttur er á sölu kindakjöts milli mánaða 55.3% og 27,6% sé horft til síðustu þriggja mánaða.

„Þetta má að einhverju leyti skýra af því að sala vegna sprengidags féll á janúar í fyrra,“ segir í frétt Bændablaðsins.

Eins var mikil sala í október og raunar mánuðina ágúst til október en þá nam söluaukning 30% miðað við sama tíma 2007 og segir Bændablaðið að landsmenn búi því að góðum kjötbirgðum í frystikistum sínum. Sala á alifuglakjöti dróst eins og áður segir saman um 25% en sala á öðru kjöti jókst.

Sjá nánar á vef Bændablaðsins.