Klakki ehf. hefur selt 200 milljónir hluta í VÍS og á nú 374,5 milljónir hluta í félaginu, eða 15,18% af útgefnu hlutafé. Kemur þetta fram í tilkynningu til kauphallarinnar. Fyrir viðskiptin átti Klakki um 23% hlut í VÍS. Miðað við gengi hlutabréfa VÍS í dag nemur söluverðið 1.660 milljónum króna.

Klakki ehf er eignarhaldsfélag í eigu íslenskra og erlendra fjármálastofnana og lífeyrissjóða, en félagið hét áður Exista. Skipt var um nafn á félaginu á hluthafafundi árið 2011. Klakki á einnig 100% hlutafjár í Lýsingu.