Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir grænar lausnir hefur stofnað dótturfélagið Klappir Nordic ApS og opnað skrifstofu í Kaupmannahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tveir starfsmenn hafa þegar verið ráðnir á skrifstofu Klappa Nordic sem er í fallegri byggingu við Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn.

Grænar lausnir Klappa miða meðal ann­ars að því að hjálpa fyrirtækjum, sveit­ar­fé­lögum og stofn­unum að byggja upp inn­viði á sviði upp­lýs­inga­tækni til að takast á við miklar áskor­anir sem framundan eru í umhverf­is­mál­um, ekki síst vegna alþjóðlegra skuldbindinga um að draga úr meng­un.

Anton Sigfússon, framkvæmdastjóri vaxtar og sjálfbærni hjá Klöppum:

,,Við höfum fengið góðar viðtökur í Danmörku síðustu mánuði og því var ákveðið að stofna Klappir Nordic. Þar eru nú starfandi tveir starfsmenn félagsins, þau Martin Kahl og Isabelle Broddén, sem munu þjónusta Norðurlöndin. Þau hafa hafa bæði víðtæka reynslu í þessum geira. Við bindum miklar vonir við að styrkja stöðu okkar enn frekar á Norðurlöndunum með stofnun Klappa Norcic."

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa:

,,Klappir starfa á markaði sem mun vaxa verulega á komandi árum og er hnattrænn. Grænar lausnir Klappa eru leiðandi hvað varðar tækni og fjölbreytileika og munu því verða eftirsóttar um allan heim í hratt vaxandi markaði og tækifærin til vaxtar verða því mörg. Viðskiptastefna okkar er skýr og eins leiðarljós okkar inn í framtíðina. Klappir munu dreifa hugbúnaðarlausnum sínum á alþjóðlegum mörkuðum í samstarfi við samstarfsaðila sem hafa þekkingu og reynslu af mörkuðum sem eru annars vegar svæðisbundnir og hins vegar bundnir atvinnugreinum."