Um áramótin stofnaði Klasi ehf. nýtt dótturfélag, Klasi Investment Services ehf., sem mun veita ráðgjöf til fasteignafjárfesta og annast stjórnun fasteignaverkefna erlendis. Hið nýja félag er í eigu Klasa, Hilmars S. Sigurðssonar og Axels Ómarssonar, sem verða starfsmenn hins nýja félags. Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, segir að með hinu nýja dótturfyrirtæki efli Klasi starfsemi sína með fjölgun starfsmanna.
Meginstarfsemi félagsins er að vernda og viðhalda verðmætum erlendra fasteignaverkefna íslenskra fagfjárfesta. Klasi á um 40.000 fermetra atvinnuhúsnæði ásamt því að stýra fasteignaverkefnum upp á 185.000 fermetra. Klasi er fasteignaþróunarfélag sem sérhæfir sig í að þróa, eiga og reka fasteignir með áherslu á langtímaeignarhald á skrifstofu- og verslunarhúsnæði.