Frystitogarinn Kleifaberg RE 70 heldur til veiða í Barentshafið í dag eftir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið frestaði fyrir stuttu sviptingu Fiskistofu á veiðileyfi togarans vegna meintra brota á lögum um umgengni nytjastofna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur.

Sagt er frá því að ÚR, sem gerir út Kleifaberg, hafi kært ákvörðun Fiskistofu á þeim forsendum að lagagrunnur hennar væri veikur, meint brot löngu fyrnd, rannsókn Fiskistofu ámælisverð, skýringar rangar, andmælaregla brotin og meðalhófs ekki gætt. Svipting veiðileyfis hefði valdið útgerð og áhöfn verulegu tjóni og ekki verið í neinu samræmi við hin meintu brot.

Í bréfi ráðuneytis til ÚR segir að ráðuneytið fresti „ ...réttarárhrifum hinnar kærðu ákvörðunar á meðan kæra er til meðferðar í ráðuneytinu, fram til 15.apríl 2019.“

Ennfremur segir að ÚR hafi í kæru sinni fraið fram á að ráðuneytið felli ákvörðun Fiskistofu úr gildi, og sé það von félagsins að sú verði niðurstaða þess, enda séu allar forsendur hennar mjög veikar.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR hf.:

„Það er gleðiefni að þetta mikla fiskiskip haldi aftur til veiða. Framundan eru sá árstími sem skipið hefur að jafnaði veitt um þriðjung af heildarverðmæti á ári hverju og því er mikilvægt að það komist úr höfn. Stefnt er að um 30 daga úthaldi og að skipið komi til baka með fullfermi. Aflaverðmæti eru mikil og skipta bæði útgerð og áhöfn mjög miklu máli.“