Leigufélagið Klettur hefur valið Þekkingu sem samstarfsaðila við rekstur og uppbyggingu tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar, er ánægður með nýju samstarfsaðilana.

„Við fögnum þessu nýja samstarfi og bjóðum Leigufélagið Klett velkomið í hópinn. Það er okkur mikil ánægja að fá öflugt félag á borð við Klett í hóp okkar ört fjölgandi viðskiptavina og sjá árangur uppbyggingar síðustu ára skila sér. Við höfum á síðustu árum unnið markvisst í uppbyggingu öryggis- og gæðamála og bjóðum í dag umhverfi sem er vel sniðið að kröfuhörðum viðskiptavinum á borð við Klett,“ segir Stefán.