Pétur G. Markan, leikmaður BÍ Bolungarvíkur, hefur tekið sæti á Alþingi. Hann kemur inn á þing þar sem hann er varaþingmaður Samfylkingarinnar en bæði fyrsti og annar varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður höfðu boðað forföll.

Pétur nam guðfræði við Háskóla Íslands en hefur meðal annars starfað á markaðs- og samskiptasviði háskólans. Hann gekk til liðs við BÍ Bolungarvík í mars 2012 eftir að hafa leikið með þeim sem lánsmaður frá Víkingi. Pétur hefur áður spilað knattspyrnu með Fjölni og Val.