Kögun hf. hefur eignast til viðbótar fyrri eign 18,8 milljónir hluta í Hands ASA og á því 107,7 milljónir hluti samtals. Kögun hf. hefur því yfirráð yfir 90,02% hlutafjár í félaginu.

Að teknu tilliti til 11.076.574 eigin hluta sem Hands ASA á sjálft ræður Kögun hf. 90,02% af atkvæðum í félaginu. Samkvæmt norskum hlutafélagalögum hefur Kögun hf. nú heimild til að innkalla alla útistandandi hluti í Hands ASA og hefur stjórn Kögunar hf. ákveðið að nýta sér þá heimild hið fyrsta.