Mörg bakarí á Íslandi auglýsa orðið konditor í bæklingum eða firmamerkjum þrátt fyrir að enginn konditor sé starfandi hjá þeim eftir því sem fram kemur í umfjöllun á Freisting.is . Þetta er ekki heimilt samkvæmt lögum en konditor er iðngrein sem var löggilt á Íslandi með útgáfu fyrstu iðnaðarlaganna árið 1927 og kallast á Íslandi kökugerð. Konditorsamband Íslands hefur þó ekki beitt sér gegn neinum ennþá.

„Nafnið konditor er notað um gjörvalla skandinavíu og hinn þýskumælandi heim. Þegar Konditorsamband Íslands var stofnað 1. mars 2012. var megin markmið og tilgangur félagsins að safna saman í ein samtök öllum konditorum og fyrirtækjum sem standa að rekstri konditori (kökugerða), auka menntun, verkkunnáttu, virðingu og vöruvöndun í greininni. Jafnframt að undirstrika og berjast fyrir sérstöðu hennar sem sjálfstæðrar iðngreinar. Konditorfagið er mjög skylt bakaraiðn og þróaðist út frá henni. Samkvæmt reglugerð um löggiltar iðngreinar 940/1999 eru matvælagreinarnar á Íslandi 6 talsins og er kökugerð ein af þeim", segir Sigurður Már Guðjónsson bakara- og konditormeistari og formaður KÍ í umfjöllun Freistingar.

Hann segir af lögunum að dæma að þeir einir sem hafa lokið námi sem konditorar geti rekið konditori. „Það að kalla bakarí „bakery" á ensku veitir ekki ófaglærðum leyfi til iðnreksturs. Ástæða þess að flestir kalla sig konditora en ekki kökugerðarmenn, er sú að ráðuneytið hefur ekki gefið út kökugerðarsveinsbréf. Ráðuneytið hefur sagt að vegna EES samningsins gildi hin dönsku og þýsku sveinsbréf á Íslandi. Aftur á móti þegar konditorar sækja um meistarabréf hjá Sýslumönnum fá þeir útgefið bréf sem á stendur „Hlýtur hér með nafnbótina meistari í kökugerð“.