Systurnar Kristín Eik og Katrín Ösp reka saman verslunina Allt í köku en salan hefur aukist hratt á undanförnum tveimur árum. Kristín segir fleiri hafa tíma til að skreyta kökur núna en áður. Fyrir tveimur árum síðar var erfitt að kaupa vörur í kökuskreytingar og því þurftu þær systur að kaupa slíkar vörur erlendis.