Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur hafið störf hjá ráðgjafafyrirtækinu Aton.
Kolbeinn er sagnfræðingur og starfaði sem blaðamaður á Fréttablaðinu, með hléum, á árunum 2008-2015. Kolbeinn hefur einnig unnið sem blaðamaður hjá Skessuhorni og upplýsingafulltrúi hjá Strætó og BSRB.
Aton hefur einnig flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði á 5. hæð að Suðurlandsbraut 32, en fyrirtækið var áður staðsett á 2. hæð á Hótel Sögu.