Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík þ. 7. mars næstkomandi.

Í tilkynningu frá kolbrúnu kemur fram að hún sé tilbúin að vera áfram í forystusveit flokksins og starfa að þeim málefnum sem flokkurinn stendur fyrir; vernd náttúru og umhverfis, kvenfrelsi, jöfnuði og samábyrgð.

„Ég  lít svo á að það sé félaga minna í flokknum að raða í sæti í forvalinu og tiltek því ekki ákveðið sæti heldur óska einungis eftir áframhaldandi umboði til að skipa forystusveit flokksins til næstu fjögurra ára,“ segir Kolbrún.