Kolbrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Starfsafls, starfsmenntasjóðs SA og Flóabandalagsins. Kolbrún hefur m.a. starfað við kennslu, verslun og ferðaþjónustu, en undanfarna tvo áratugi hefur hún verið útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands.