Kolbrún Stefánsdóttir, oddviti framboðslista Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi, var í dag kjörin varaformaður flokksins á miðstjórnarfundi.

Hún kemur í stað Ásgerðar Jónu Flosadóttur sem var kjörin varaformaður Frjálslynda flokksins á landsfundi nýverið. Rúmlega viku seinna sagði Ásgerður Jóna sig úr Frjálslynda flokknum.