Bílaleigan AVIS býður fyrrum starfsfólki flugfélagsins Wow air sem hefur verið með bíl í langtímaleigu áfram sérkjör út leigutímann að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Ennfremur verður skilagjald fellt niður ef starfsfólk flugfélagsins vill skila bílnum fyrr en áætlað var.

AVIS vill með þessu koma til móts við starfsfólk Wow sem gengur í gegnum erfiðleika vegna gjaldþrots fyrirtækisins," segir í tilkynningunni. „Við hjá bílaleigunni AVIS biðjum alla sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu að hafa samband við þjónustuverið, en vel verður tekið á móti öllum og lausn fundin sem hentar hverjum og einum."