Pósturinn hefur kynnt nýja þjónustu fyrir viðskiptavini sína sem ber heitið Skrá og Senda. Með þjónustunni geta viðskiptavinir Póstsins sparað sér ferð á pósthús og póstlagt sendingar beint í póstbox sem staðsett eru í alfaraleið um land allt. Guðjón Ingi Ágústsson, forstöðumaður stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum, lýsir þjónustunni sem mikið framfaraskref fyrir viðskiptavini og segir að Pósturinn sé fyrstur fyrirtækja á markaðnum með slíka þjónustu.

„Nýja Skrá og Senda þjónustan opnar á enn fleiri afhendingastaði sendinga fyrir viðskiptavini Póstsins auk þess sem langflest Póstbox eru opin allan sólarhringinn. Viðskiptavinir geta því póstlagt sendingar þegar og þar sem þeim hentar, sama hvort um er að ræða jólagjafir til annarra landshluta eða vöruskil til netverslana,“ er haft eftir Guðjóni Inga í fréttatilkynningu.

Að sögn Guðjóns Inga er þjónustan orðin virk í Póstboxunum á Selfossi, í Þorlákshöfn og í Hraunbæ í Reykjavík en frá byrjun nóvember munu viðskiptavinir Póstsins geta póstlagt sendingarnar sínar í 46 Póstbox um allt land.

„Þess má geta að Pósturinn er sífellt að bæta við fleiri Póstboxum og því mun afhendingarstöðum fjölga með tímanum. Þetta er aðeins fyrsta skrefið í þeirri framþróun sem Pósturinn er að vinna að og mun fleiri lausnir líta dagsins ljós á næstu mánuðum. Mun þetta hjálpa netverslunum að afgreiða vöruskil viðskiptavina sinna með enn skilvirkari hætti um leið og vörurnar berast í Póstbox," segir Guðjón Ingi ennfremur.

Til þess að nýta sér Skrá og Senda þjónustuna þurfa viðskiptavinir að vera innskráðir á mínar síður á vef Póstsins og skrá sendinguna áður en hægt er að póstleggja hana í Póstbox. Viðskiptavinir þurfa jafnframt að vera með kreditkort á skrá á mínum síðum Póstsins og heimila sjálfvirkar greiðslur. Leiðir skráningarferlið viðskiptavininn áfram og því ættu allir að geta nýtt sér þessa þjónustu. Í byrjun nóvember munu viðskiptavinir einnig geta skráð sendingar í appi Póstsins sem eykur enn á þægindin.