Eignarhaldsfélagið RES II sem er í eigu hjónanna Sigurðar Bollasonar og Nönnu Ásgrímsdóttur er komið með 6,54% hlut í Kviku banka samkvæmt flöggunartilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið fer með 1,83% beinan eignarhlut í bankanum en á auk þess 4,71% hlut í gegn um framvikra samninga.

RES II átti um síðustu mánaðarmót um 1,68% beinan hlut í Kviku banka og hefur því einnig bætt við beinan hlut sinn á síðustu dögum. Samanlagður hlutur félagsins gerir RES II að fjórða stærsta hluthafa Kviku.