Steinunn Guðbjartsdóttir, fyrrum formaður slitastjórnar Glitnis, segir í samtali við Mbl.is , að upplýsingar um verðbréfaviðskipti Markúsar Sigurbjörnssonar, forseta Hæstaréttar, hafi ekki komið frá slitastjórninni. Í frétt Stöðvar tvö var haldið fram að gögnin hafi komið þaðan.

Haft er eftir Steinunni að hún kannist ekki við það að upplýsingarnar hafi komið inn á borð hjá slitastjórninni. Hún tekur jafnframt fram að þessi gögn hafa ekki komið frá þeim og voru ekki til skoðunar í þann tíma sem slitameðferð búsins stóð yfir.