Komu- og brottfararleyfi Icelandair á Heathrow-flugvelli í Bretlandi eru um 10 milljarða virði og eru framseljanleg milli flugfélaga. Er sagt frá þessu á Túristanum . Það er eftirsóknarvert að geta boðið upp á flug til Heathrow, stærsta flugvallar í Evrópu.

Þar er þó ekki pláss fyrir fleiri þotur og ekki hægt að úthluta fleiri félögum aðstöðu. Komu- og brottfararleyfi á vellinum eru því mjög verðmæt.

Haft er eftir forstjóra Heathrow í frétt á heimasíðu The Independent, að dæmi eru um að leyfi hafi verið seld fyrir tæplega fimm milljarða íslenskra króna. Tvisvar á dag lenda vélar Icelandair við Heathrow.

Virði þessara tveggja komu- og brottfararleyfa félagsins í London gæti því verið nærri tíu milljarðar. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair segir það þó ekki á dagskrá, enda flug til Heathrow mikils virði fyrir leiðakerfi félagsins.