Jack Lew, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, mun samkvæmt heimildum CNN tilkynna um að andlit konu verði í fyrsta sinn á 20 Bandaríkjadala seðlinum. Þá mun Andrew Jackson víkja fyrir vikið.

Íhugað var að færa Alexander Hamilton af tuttugu dala seðlinum í þessum tilgangi, en Bandaríkjamenn og aðdáendur Hamilton brugðust ókvæða við þegar fréttir af því bárust heimspressunni.

Þá hefur einnig verið íhugað að setja samsetta mynd af baráttukonum fyrir kosningarétti aftan á seðilinn. Þá hefur einnig verið til skoðunar að nota 5, 10 og 20 Bandaríkjadala seðlana til þess að lýsa fleiri konum og segja frá sögu kvenna.