Enska biskupakirkjan hefur greitt atkvæði sem heimilar konum í fyrsta sinn í sögunni að verða biskupar í þeirri kirkju. General Synod veitti lokaheimild eftir fimm klukkustunda umræðu. Erkibiskup Canterbury Justin Welby og forsætisráðherra Bretlands David Cameron studdu tillöguna.
BBC greinir frá að árið 2012 var reynt að samþykkja þessa nýju reglu en þá komu íhaldsamir prestar í veg fyrir það. Erkibiskupinn í York bað um að ákvörðuninni yrði fagnað í rólegheitum en svo varð ekki því mikil fagnaðarlæti urðu þegar ákvörðunin var tilkynnt.
Skiptar skoðanir hafa verið á því hvort kona megi verða biskup eftir að samþykkt var að konur mættu verða prestar innan Englandskirkju fyrir rúmlega tuttugu árum siðan.