Verð á jólamat hefur í flestum verslunum hækkað nokkuð verð í milli ára samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands. Í tilkynningu frá ASÍ  er tekið fram að einnig megi finna nokkur dæmi um verðlækkanir.

„Verslanirnar Bónus, Víðir og Samkaup-Úrval hafa frekar lækkað verð en hækkað. Hjá Nettó, Iceland og Fjarðarkaup hefur verð frekar hækkað en lækkað," segir tilkynningunni.

„135 gr. Nóa konfektkassi hefur hækkað töluvert í verði síðan í desember 2013. Mesta hækkunin er um 30% hjá Fjarðarkaupum, 20% hjá Samkaupum-Úrvali, 16% hjá Iceland, og 12% hjá Nettó og Krónunni, 6% hjá Hagkaupum, 5% hjá Bónus en Nóa konfektið lækkað í verði um 1% hjá Nóatúni og 5% hjá Víði. 520 gr. konfektkassi hefur hækkað um allt að 33% og 1 kg. askjan hefur hækkað um allt að 31%.

En það er ekki bara Nói-Síríus sem hefur hækkað hjá sér verð, því verðið á 460 gr. Lindu konfektkassa hefur einnig hækkað en mesta hækkunin er um 36% hjá Nettó, 27% hjá Fjarðarkaupum, 19% hjá Nóatúni, 15% hjá Bónus, 12% hjá Iceland og 1% hjá Krónunni. Lindu konfektið er á sama verði og fyrra hjá Samkaupum-Úrvali en hefur lækkað í verði um 4% hjá Hagkaupum.
Jólakaffið frá Kaffitár hefur hækkað um 29% hjá Krónunni, 27% hjá Nettó, 26% hjá Fjarðarkaupum, 22% hjá Víði, 15% hjá Hagkaupum, 10% hjá Samkaupum-Úrvali en lækkað í verði um 10% hjá Bónus."

Á vefsíðu ASÍ er tengill á excel-skjal þar sem hægt er að skoða nánari samanburð milli verslana.