Júlíus Vífill Ingvarsson leiðir baráttuna um efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í borginni samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem greint var frá í dag.

Þar kemur fram að 40,5% vilja að hann leiði listann. 26,2% vilja frekar sjá Halldór Halldórsson í fyrsta sætinu en um 19% styðja Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur. Hildur Sverrisdóttir mælist svo með 14,3% fylgi til að leiða listann. Alls tóku 68,9% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins afstöðu til spurningarinnar.