Konráð S. Guðjónsson mun taka við starfi hagfræðings Viðskiptaráðs á nýju ári, eða 15. janúar 2018. Kristrún Frostadóttir lætur um leið af störfum og tekur við starfi sem aðalhagfræðingur Kviku banka.

„Við erum afar spennt að fá Konráð til liðs við ráðið enda hefur hann góða reynslu og bakgrunn sem hæfir starfinu vel," segir Ásta S. Fjeldsted framkvæmdastjóri ráðsins. „Um leið þökkum við Kristrúnu fyrir vel unnin störf og gleðjumst yfir því að starfsfólk ráðsins sé svo eftirsótt sem raun ber vitni."

Konráð kemur til Viðskiptaráðs frá Arion banka þar sem hann hefur starfað sem sérfræðingur í greiningardeild í þrjú ár. Í greiningardeild vann Konráð að ýmsum greiningum og skýrslum á íslensku efnahagslífi, t.d. um ferðaþjónustu, húsnæðismarkað, krónuna og vaxtaþróun.

Þar áður starfaði Konráð um hríð sem hagfræðingur á skrifstofu forsetans í Tansaníu, hjá Hagfræðistofnun og sem starfsnemi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda.

Þá hefur Konráð kennt hagfræði fasteignamarkaðarins við Endurmenntun Háskóla Íslands og veitt leiðsögn við laxveiði svo eitthvað sé nefnt. Konráð er með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla og með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.