Skortur hefur verið á innlendum blómum að undanförnu en blómabúðir hafa aðeins fengið blóm upp í brot af pöntunum sínum frá innlendum framleiðendum fyrir stóru blómadagana nú í febrúar, Valentínusardaginn og konudaginn.

Í frétt Félags atvinnurekenda (FA) kemur fram að við þær aðstæður sem nú eru uppi eigi blómaverslanir ekki annan kost en að flytja inn blóm en tollar á blómum séu áfram gífurlega háir. Ekkert sé að frétta af endurskoðun fjármála- og atvinnuvegaráðuneyta á blómatollum.

Fram kemur að FA sé kunnugt um að seljendur innlendra blóma skammti blómabúðum blóm þessa dagana. Félagið þekki þannig dæmi þess að blómaverslun hafi eingöngu fengið 20 íslenskar rósir upp í miklu stærri pöntun. Þá hafi félagið séð samskipti þar sem heildsalar innlendra blóma segjast ekki geta lofað að afhenda neitt upp í viðkomandi pöntun.

Tollar tvöfalda innflutningsverð
Í frétt FA segir að þetta stangist á við fullyrðingar stærsta blómaræktanda landsins sem birtust í Fréttablaðinu fyrir nokkrum misserum, um að innlend framleiðsla annaði eftirspurn eftir afskornum blómum og innflutningur væri óþarfur.

Við þessar aðstæður sé innflutningur blóma nauðsynlegur til að anna eftirspurn. Innflutt afskorin blóm beri hins vegar „ofurtolla“; 30% verðtoll og auk þess 95 króna stykkjatoll á hvert einasta blóm. Þannig beri rós, sem keypt er á eina evru, eða 156 krónur, samtals 141,8 krónur í toll og innflutningsverð hennar hartnær tvöfaldist.

Í ársbyrjun 2020 tók gildi lagabreyting, sem felldi úr gildi heimild til að gefa út svokallaðan skortkvóta, þ.e. innflutningsheimildir á lægri tollum, ef innlenda búvöru vantar á markað. Þannig sé enginn möguleiki lengur á að bregðast við skorti á íslenskum blómum með því að lækka tolla á innflutningi.

Félagið bendir þannig á að í skjóli hárra tolla geti innlendir blómaræktendur haldið uppi verðinu á sínum vörum og vísa til þess að í byrjun febrúar hafi helsta heildsala innlendra blóma tilkynnt 7% hækkun á blómum í búntum og 4% á stykkjavöru.

Engin svör um endurskoðun á tollum
Fjármálaráðuneytið og atvinnuvegaráðuneytið hófu í nóvember 2019 vinnu við endurskoðun á blómatollum eftir að FA, með stuðningi 25 blómaverslana, hafði sent ráðuneytunum erindi og sýnt fram á hversu ósanngjarnt, samkeppnishamlandi og neytendafjandsamlegt tollaumhverfi blómaverslunar á Íslandi er. Samkvæmt félaginu hefur þó ekkert frést af þeirri vinnu frá því í júní síðastliðnum, en þá fékk FA þau svör frá fjármálaráðuneytinu að niðurstöðu væri að vænta fyrir lok þess mánaðar. FA sendi ráðuneytunum ítrekun á erindinu fyrr í mánuðinum, en hefur að sögn ekki fengið nein svör.

Þess vegna er konudagsvöndurinn svona dýr
„Háir tollar og takmörkuð samkeppni við innlenda blómaræktun eru meginorsök þess hvað konudagsvöndurinn er dýr," segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Við skorum enn og aftur á stjórnvöld að taka þetta löngu úrelta kerfi til endurskoðunar. Það er hægt að halda tiltekinni vernd fyrir innlenda framleiðendur en gera engu að síður breytingar sem yrðu blómaversluninni og neytendum mjög til hagsbóta."