Lagabreyting sem heimilar konum að keyra bíla tók gildi í Sádí Arabíu í dag. Ákvörðunin er ekki einungis jafnréttismál í hugum stjórnvalda því umtalsverðir hagsmunir eru í húfi fyrir efnahag landsins. Talið er að ákvörðunin geti aukið atvinnuþátttöku kvenna til muna og þar með aukið hagvöxt verulega að því er Bloomberg greinir frá . Einungis um 20% kvenna í Sádí Arabíu er í dag á vinnumarkaði en hlutfallið í nágrannaríkjunum er um 43%.

Talið er að ákvörðunin geti stækkað hagkerfi Sádí-Arabíu um allt að 90 milljarða dollara. Bloomberg bendir á að þetta skipti því efnahag landsins ekki minna máli en áform stjórnvalda um að selja 5% hlut í ríkisolíufyrirtækinu Aramco sem metinn er á allt að 100 milljarða dollara.