Félag kvenna í atvinnulífinu veitti í dag sína árlega viðurkenningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, hlaut viðurkenninguna.

Hvatningarverðlunin hlutu þær Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir, eigendur Tulipop, sem selja hönnun sína víða um heim.

Þakkarviðurkenninguna hlaut Guðrún Lárusdóttir í Stálskipum sem rekur fyrirtækið ásamt eiginmanni sínum. Hún er eina konan í stjórn LÍÚ.

Samtök verslunar og þjónustu hlutu síðan Gæfusporið 2012 og formaður félagsins, Margrét Kristmannsdóttir, veitti viðurkenningunni viðtöku.