Félagsskapurinn Konur í tækni munu skoða gagnaver Advania í Hafnarfirði á miðvikudag í næstu viku. Félagið hefur það að markmiði að hvetja konur til að taka virkan þátt í tæknigeiranum og hefur starfsemi þess verið mjög virk upp á síðkastið.

Fram kemur í tilkynningu frá Advania að umræðan um uppbyggingu gagnavera á Íslandi hafi ekki farið framhjá neinum. Aukinn áhugi á „Skýinu“ drífi áfram vöxt í þessum geira auk ýmissar þjónustu til að mynda Software as a Service (SaaS), Platform as a Service (PaaS) og Infastructure as a Service (IaaS).

Það verða þau Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, og Ragnhildur Ágústsdóttir, forstöðumaður hýsingar og reksturs hjá Advania, sem taka á móti gestum og fræða þá um hvernig Advania sameinar þekkingu, gagnaver sín og græna orku til að bjóða upp á þjónustu og vörur.