Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað tæplega 16 milljónum króna í styrkjum, sem ætlað er að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur og eru með áhugaverða viðskiptahugmynd. Að þessu sinni var um að ræða aukaúthlutun styrkja til atvinnumála kvenna fyrir árið 2007 vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar og því mestu úthlutað til kvenna á landsbyggðinni. Seinna á þessu ári verður úthlutað 50 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna.

Spákonuhof, búningaleiga, lífræn sulta og útfarir

Alls bárust 115 umsóknir en 28 verkefnum er úthlutað styrk, allt frá 200 þúsund krónum til 1,5 milljónar króna. Hæstu styrkina fá verkefnin Spákonuhof á Skagaströnd og búningaleiga á Akureyri. Meðal þeirra verkefna sem styrkt eru má nefna vöruþróun í lífrænni sultugerð, stofnun og markaðssetning á útfararstofu, „sala“ á lifandi fé auk ýmiss konar verkefna sem ætlað er að styrkja ferðaþjónustu, meðal annars á Patreksfirði, Bakkafirði og í Húnaþingi.

Ráðherra hefur einnig ákveðið að efla til muna stuðning og ráðgjöf við konur sem hafa áhuga á að vinna með viðskiptahugmyndir sínar í samstarfi við aðrar konur um allt land. Vinnumálastofnun mun innan tíðar kynna þá þjónustu betur, en þessa dagana er verið að auglýsa eftir starfsmanni sem mun annast það verkefni innan stofnunarinnar.