Í lok árs 2014 voru konur 25,5% stjórnarmanna fyrirtækja sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá, sem er hækkun upp á 0,4 prósentustig frá fyrra ári. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Konum hefur fjölgað mikið í stjórnum stærri fyrirtækja undanfarin ár. Árið 2014 voru konur þriðjungur stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri, til samanburðar við um 15% árið 2008, 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999.

Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 starfsmenn hefur lítið breyst á síðustu árum, en þau eru tæp 98% af fjölda fyrirtækja sem greiða laun.