Fram kemur í hálfsársuppgjöri Kópavogs, sem lagt var fram í bæjarráði í dag, að afgangur bæjarins fyrstu sex mánuði ársins nemi 452 milljónum króna.

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar er mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir samkvæmt fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ. Gert var ráð fyrir 667 milljóna afgangi fyrir allt árið í fjárhagsáætlun bæjarins, en nú þegar sex mánuðir voru liðnir af árinu hafi afgangur verið 452 milljónir króna.

Segir í tilkynningunni að betri afkoma bæjarins skýrist einkum af meiri tekjum en áætlanir gerðu ráð fyrir og lægri fjármagnsgjöldum vegna lægri verðbólgu en áætlað var.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 2.325 m.kr. Þetta þýðir að framlegðarhlutfall samstæðu var um 21%, en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu 15-20%.

Skuldahlutfall samstæðu Kópavogsbæjar lækkar á tímabilinu. Var hlutfallið 179% fyrir samstæðuna séu þær forsendur gefnar að helmingur tekna ársins sé fallinn til og að frádráttur vegna lífeyrisskuldbindinga sé sá sami og í ársreikningi 2013, en skuldahlutfallið var þá 185%. Miðað við sömu forsendur, þá er skuldahlutfall A-hluta komið í 147%.

„Árshlutauppgjörið skilar okkur betri afkomu en við reiknuðum með sem er gott en þess má geta að nýir kjarasamningar hafa litil áhrif á fyrri hluta ársins og þá var verðbólga lægri en við gerðum ráð fyrir. Við þurfum því og munum áfram gæta aðhalds í rekstri,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. „En það er ánægjulegt að rekstur bæjarfélagsins heldur áfram að styrkjast, skuldirnar hafa lækkað og við höldum ótrauð áfram á þeirri braut að greiða þær niður.“