Kópavogsbær hefur gert samkomulag við Lánasjóð sveitarfélaga um 5 milljarða kr. lán til að endurfjármagna lán við Dexia Local Crédit upp á 35 milljónir evra, um sex milljarða króna, sem er á gjalddaga í maí 2013. Mismuninn mun bærinn greiða með handbæru fé. Kemur þetta fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kópavogsbær hefur að undanförnu einnig unnið að skammtíma framlengingu og/eða fjármögnun á hluta af Dexia-láninu til að dreifa kaupum á gjaldeyri fram á haust 2013. Á þessu stigi er reiknað með jákvæðri niðurstöðu úr þeirri vinnu.

Bærinn hefur einnig gert upp erlenda lánalínu við innlendan banka að fjárhæð um 2,7 milljarðar ISK. Þetta lán var endurfjármagnað með láni frá sama banka í íslenskum krónum.