Kópavogsbær gekk í vikunni frá síðustu greiðslu af 35 milljóna evru láni frá Dexia-banka. Upphæðin samsvarar 5,6 milljörðum króna. Lánið var tekið í maí 2008 til fimm ára. Þar með eru erlendar skuldir bæjarins óverulegar og gengissveiflur nánast úr sögunni.

Lánið hjá Dexia var eingreiðslulán en vegna gjaldeyrishafta og gjaldeyrisskorts var samið um dreifingu á greiðslum á því frá mars til september 2013. Það var greitt upp með láni á mjög hagstæðum kjörum frá Lánasjóði sveitarfélaganna og  það sem út af stóð var greitt með handbæru fé.

„Rík áhersla hefur verið lögð á að lækka skuldir bæjarins hratt og örugglega og að endurfjármagna óhagstæð lán á betri kjörum. Sveiflur í afkomu lækka verulega við þessa uppgreiðslu og afborganir á næstu árum  verða mun lægri en í ár. Stefnt er að því að fjármagna þær afborganir að stærstum hluta með rekstrarafgangi,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.