Afgangur af rekstri A-hluta bæjarsjóðs Kópavogsbæ á næsta ári er áætlaður um hálfur milljarður króna, en af A- og B-hluta er gert ráð fyrir 608 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri samstæðu Kópavogsbæjar verður samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, 3,8 milljarðar króna. Þetta er fjórða árið í röð sem fjárhagsáætlunin er unnin í samstarfi allra flokka í bæjarstjórn.

Skatttekjur bæjarsjóðs, auk annarra tekna aukast úr 29,2 milljörðum króna í ár upp í rúmlega 35,3 milljarða ef áætlanir ganga eftir, eða um 21,1%. Að sama skapi aukast útgjöldin úr 25 milljörðum í 33,8 milljarða, sem er aukning um 35,5%, ef áætlanir ganga eftir.

Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði í Kópavogi lækkar sjöunda árið í röð. Fer skatturinn úr 0,23 % í 0,22%. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,60 í 1,50% auk þess sem vatns- og holræsagjöld lækka umtalsvert að því er segir í fréttatilkynningu bæjarins.

Klára greiðslu lána frá hruninu

Skuldahlutfall heldur áfram að lækka og verður 119% í árslok 2019 en það hefur lækkað úr 175% frá árinu 2014. Niðurgreiðsla skulda heldur áfram og lýkur greiðslum á lánum sem tekin voru í hruninu. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri segir að Kópavogsbær hafi neyðst til að endurfjármagna sig í hruninu með mjög ósanngjörnum lánum.

„Uppgreiðsla þeirra á næsta ári þýðir að greiðslubyrði léttist til muna. Fjárhagsstaða bæjarins styrkist því jafnt og þétt,“ segir Ármann. „Íbúar í Kópavogi hafa notið bættrar afkomu í gegnum aukna þjónustu og ýmsar framkvæmdir, stórar og smáar. Þessi fjárhagsáætlun undirstrikar sterka fjárhagsstöðu bæjarins.“

Vilja grípa inn vegna kvíða barna

Fjárhagsáætlunin endurspeglar áherslu á mennta- og velferðarmál í Kópavogsbæ að því er segir í tilkynningunni. Þar má nefna að aukin áhersla verður á fyrirbyggjandi starfsemi og í því skyni lagt aukið fjármagn í fræðslu og námskeið fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri ásamt fyrir foreldra þeirra og þá sérstaklega beint sjónum að snemmtækri íhlutun og þar með stuðningi, til dæmis vegna kvíða barna. Sálfræðiþjónusta verður aukin í skólum og heilsuefling starfsmanna efld.

Þá er gert ráð fyrir verulegri aukningu í málefni fatlaðra vegna notendastýrðrar aðstoðar, svo og vegna aukinnar þjónustu við fatlaða einstaklinga í sérhæfðum búsetuúrræðum. Jafnframt þessu er gert ráð fyrir fjármagni vegna væntanlegs samstarfs við Reykjavíkurborg  vegna húsnæðis fyrir fólk með fjölþættan vanda. Þá verður áhersla á lýðheilsumál og ráðið í nýja stöðu verkefnastjóra íbúatengsla. Alls verður 3,7 milljörðum króna eytt í alls kyns uppbyggingarverkefni í Kópavogi 2019.

Íbúar verð 37,5 þúsund

Meðal verkefna sem ráðist verður í er bygging húsnæðis fyrir Skólahljómsveit Kópavogs sem reist verður við Álfhólsskóla og stefnt er á að ljúka í árslok. Þá verður hafist handa við byggingu sambyggðs grunn- og leikskóla við Skólagerði á Kársnesi, 150 milljónum er varið í þá byggingu á næsta ári en alls 2,1 milljörðum, á næstu fjórum árum.

Áfram verður sinnt verkefninu skemmtilegri grunnskóla- og leikskólalóðir og 125 milljónum varið í viðhald á Kópavogsskóla. Þá er áhersla á áframhaldandi fjölgun félagslegra íbúða.

Í tengslum við þéttingarverkefni á Kársnesi og í Smáranum verður ráðist í umtalsverðar gatnaframkvæmdir, alls fyrir um 600 milljónir króna. Ráðist verður í endurbætur og viðhald í menningarhúsum Kópavogs. Loks má þess geta að lokið verður við endurnýjun Kópavogsvallar. Íbúar Kópavogs verður 37.500 í árslok 2019 samkvæmt áætluninni en um 36.800 í lok 2018.