Kortavelta Íslendinga í innlendri fataverslun jókst um 13,1% í ágúst síðastliðnum og nam tæpum 2,2 milljörðum í ágúst nú samanborið við rúman 1,9 milljarða í ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

„Raunar hefur fataverslun einnig vaxið undanfarna mánuði og hefur kortavelta í flokknum aukist um 17% ef tímabilið apríl til ágúst 2018 er borið saman við sama tímabil í fyrra, eða sem nemur 1,6 milljörðum yfir tímabilið. Er þetta til marks um ágætan kaupmátt landsmanna þessi misserin og þá kann opnun H&M hérlendis í lok ágúst í fyrra að skýra vöxtinn að hluta," segir í tilkynningunni.

Netverslun Íslendinga hjá innlendum netverslunum með föt jókst á sama tímabili um 29% og nam 379 milljónum í samanburði við ríflega 11 milljarða í búðum og nam netverslunin því 3,4% af kortaveltu flokksins.