Samkvæmt tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun sem birtar voru á föstudaginn nam kreditkortavelta í nóvember 25,5 milljörðum króna og var það 7,5% meiri velta í krónum talið en í sama mánuði í fyrra.

Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 10,3% milli ára. Má þakka það fyrst og fremst 41,9% raunaukningu í erlendri kortaveltu á milli ára, en innlend kreditkortavelta jókst um 4,6% á sama tíma.

Fjallað er um þetta í Morgunkorni Íslandsbanka en þar segir að svo virðist sem einkaneysla hafi heldur rétt úr kútnum það sem af er liðið vetri. Þó sé einkaneyslan enn til muna minni en raunin var fyrir hrun sem sé eðlilegt er miðað við það fjárhagslega högg sem heimilin hafa orðið fyrir.

Svipuð þróun varð á debetkortaveltu, en debetkortavelta í innlendum verslunum nam 19,3 milljörðum króna í nóvember og jókst að raungildi um 3,1% frá sama mánuði í fyrra.

„Má bæta við þetta að velta í dagvöruverslun jókst um 3,3% að raungildi á þessum tíma samkvæmt tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar birti á föstudaginn. Þær tölur segja því sömu sögu,“ segir í Morgunkorni.

Greining Íslandsbanka segir að raunbreyting á kreditkortaveltu og debetkortaveltu í innlendum verslunum gefi góða mynd af þróun einkaneyslu hérlendis. Á þann kvarða jókst kortavelta um 7,1% að raungildi í nóvember frá sama mánuði í fyrra. Er það fjórði mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti.

„Þetta er vísbending um að heimilin séu heldur að auka við sig neyslu eftir að hafa hert beltin verulega undanfarin tvö ár,“ segir í Morgunkorni.