Heildarveltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum var um 4,5% í desember miðað við sama tímabil ári fyrr. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Valitor hefur tekið saman.

Notkun innanlands jókst um 2,6% en erlendis var veltuaukningin hins vegar 17,51%.

Ef horft er til jólakortaveltunnar innanlands, þ.e. tímabilið frá 1. til 24. desember, sé að heildarveltuaukningin á því tímabili varð 3% sé miðað við sama tímabil árið 2013.