Skáldsagan Korter eftir Sólveigu Jónsdóttur rithöfund verður gefin út á Ítalíu eftir að útgáfurétturinn var keyptur þar í landi. Korter kom út hér á landi vorið 2012 og í Þýskalandi í febrúar 2014 þar sem hún hefur fengið góðar viðtökur.

„Ég er mjög þakklát hvað hún hefur fengið góða dóma í Þýskalandi og gaman að sjá hvað henni virðist vegna vel þar,“ segir Sólveig um móttökurnar í Þýskalandi.

Spurð hvort hún haldi að sagan verði gefin út víðar segir Sólveig: „Ég hef alla vega ekki heyrt af því enn sem komið er en maður veit aldrei hvað verður. Það verður spennandi að sjá hvað Ítölum finnst.“