Ferðamálastofa hefur sett af stað vinnu við fyrsta hluta verkefnis um kortlagningu auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu á landsvísu. Rannsóknamiðstöð ferðamála er framkvæmdaraðili verkefnisins, en þessi fyrsti verkþáttur er unninn í og með fulltingi sveitarfélagana Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþinga Ytra og Eystra og Skaftárhrepps. Er markmiðið að safna upplýsingum um m.a. aðdráttarafl og sérstöðu svæðisins, áhugaverða viðkomustaði ásamt þjónustuframboði á svæðinu í einn kortagrunn.

Þessi vinna mun einnig nýtast til að bera kennsl á frekari vöruþróun innan ferðaþjónustunnar sem hægt er að bjóða á svæðinu. Þá getur kortagrunnurinn einnig samræmt og eflt til muna alla upplýsingagjöf til ferðafólks á svæðinu.