Ákveðið hefur verið að kjördagur til stjórnlagaþings verði laugardaginn 27. nóvember nk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi en hlutverk stjórnlagaþings er að endurskoða stjórnarskrá Íslands.

Stjórnlagaþingið skal skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa sem kosnir skulu persónukosningu og er landið eitt kjördæmi við þessa kosningu.

Framboðsfrestur fyrir stjórnlagaþingskosningar rennur út 18. október 2010.