Orkuveitan
Orkuveitan
© BIG (VB MYND/BIG)
Borgarstjórn kaus í dag fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sf. Kosið var í fimm manna stjórn til eins árs og fimm til vara; formanns- og varaformannskjör.

Kosin voru án atkvæðagreiðslu: Haraldur Flosi Tryggvason
Brynhildur Davíðsdóttir
Gylfi Magnússon
Kjartan Magnússon
Sóley Tómasdóttir

Varamenn voru kosnir með sama hætti:

Ingrid Kuhlman
Elín Blöndal
Reginn Mogensen
Júlíus Vífill Ingvarsson
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Formaður er kjörinn án atkvæðagreiðslu Haraldur Flosi Tryggvason. Varaformaður er kosinn með sama hætti Brynhildur Davíðsdóttir, að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ný stjórn tekur til starfa á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur sem verður haldinn þann 23. júní 2011.